05. febrúar 2025
Útibú Arion og Varðar loka klukkan 15.00 í dag

Þar sem Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir hættustigi almannavarna vegna veðurs frá klukkan 15 í dag munum við loka útibúum okkar þá.
Við opnum útibúin aftur klukkan 13 á morgun.
Þrátt fyrir þessar lokanir mun starfsfólk okkar í þjónustuveri vera til taks í síma 444 7000 til klukkan 16 í dag og frá klukkan 9 til 16 á morgun. Einnig er hægt að nálgast okkur í gegnum netspjallið á arionbanki.is og með því að senda okkur póst á netfangið arionbanki@arionbanki.is.