Styrmir Sigurjónsson ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka

Styrmir Sigurjónsson ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka

Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19 - myndHöfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19

Styrmir Sigurjónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka og mun hefja störf þann 17. febrúar næstkomandi.

Styrmir hefur víðtæka reynslu á sviði upplýsingatækni og vöruþróunar og hefur frá árinu 2009 starfað hjá Natera í Bandaríkjunum. Natera sérhæfir sig á sviði erfðagreiningar og er skráð í Nasdaq CM kauphöllina. Styrmir hefur frá árinu 2012 gegnt ýmsum stjórnunarstörfum hjá Natera, verið framkvæmdastjóri rannsóknar og vöruþróunar frá árinu 2017 og stýrt yfir 200 manna þróunarteymi sem er staðsett í mörgum löndum. Áður en Styrmir höf störf hjá Natera starfaði hann hjá Straumi fjárfestingarbanka, FL Group og fjárfestingarbanka Citi.

Styrmir er með doktors- og meistarapróf í rafmagnsverkfræði frá Stanford og C.S. próf í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands. Styrmir er giftur Berglindi Erlingsdóttur mannfræðingi og eiga þau þrjú börn.