Frábærar nýjungar sem hjálpa fyrirtækjum að halda utan um notkun kreditkorta

Arion banki heldur áfram að vera í fremstu röð í að bjóða stafrænar nýjungar sem auðvelda fyrirtækjum og einstaklingum að stýra fjármálum sínum á skilvirkan og öruggan hátt. Nú bætir bankinn við tveimur lausnum sem einfalda fyrirtækjum að halda utan um kreditkortaviðskipti sín. Annars vegar er um að ræða stjórnun heimilda í netbanka; hins vegar má nú hlaða myndum af greiðslukvittunum beint inn í Arion appið.
„Við finnum fyrir virkilega mikilli ánægju hjá fyrirtækjum með þessar nýjustu lausnir okkar,“ segir Sigurhans Vignir, vörustjóri á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði, og tekur fram að lausnirnar séu í grunninn mjög einfaldar og þægilegar í notkun.
„Sú fyrri virkar þannig að lykilnotendur netbanka fá auknar heimildir og geta stofnað kort og breytt og stjórnað heimildum kreditkorta fyrirtækisins innan þeirrar heildarheimildar sem ákveðin er í upphafi,“ segir Sigurhans Vignir. „Þetta einfaldar fólki lífið alveg svakalega og hjálpar fyrirtækjum að hafa yfirsýn yfir kortanotkunina. Segjum til dæmis að starfsmaður sé á ferðalagi erlendis og þurfi aukið svigrúm í kortanotkuninni. Þá tekur enga stund að stilla það af innan fyrirtækisins og óþarfi að vera að hringja í okkur.“
„Seinni lausnin er síðan frábær viðbót við þá fyrri en hún felst í því að nú má taka myndir af kvittunum og vista í Arion appinu ásamt viðbótarupplýsingum, s.s. kostnaðarstöð eða bókhaldslykli. Segjum til dæmis að áðurnefndur starfsmaður á ferðalagi fari með viðskiptavini út að borða; kvittunin fyrir kvöldmáltíðinni verður þá, ásamt viðbótarupplýsingum, strax aðgengileg í netbanka fyrirtækisins og þar geta starfsmenn í bókhaldi sótt gögnin. Hér heyrir því sögunni til að fólk í bókhaldi þurfi að velta við hverjum steini í leit að krumpuðum kvittunum.“
Fljótlega verður svo boðið upp á að tengja þessa lausn beint við bókhaldskerfi, þar sem bæði kvittunin og viðkomandi færsluupplýsingar skila sér rakleiðis inn í bókhaldið.
„Við erum alltaf að leita leiða til að einfalda bæði fyrirtækjum og einstaklingum lífið og hjálpa þeim að halda utan um fjármálin.“

Sigurhans Vignir