Gamlársdagur ekki lengur bankadagur

Samkvæmt ákvörðun Seðlabankans verður 31. desember ekki lengur bankadagur. Þetta hefur áhrif á fyrirtæki, stofnanir og aðra sem gefa út kröfur, greiða laun og framkvæma aðrar greiðslur sem hér segir:
- Þær kröfur, sem eiga að greiðast á árinu 2025, þurfa að hafa eindaga í síðasta lagi þriðjudaginn 30. desember.
- Klára þarf allar greiðslur, sem tengjast árinu 2025, fyrir lok dags 30. desember.
- Stórgreiðslukerfið verður lokað þann 31. desember.
- Þar sem 31. desember verður ekki bankadagur munu allar greiðslur þann dag bókast á 2. janúar 2026.
Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu Seðlabanka Íslands:
Reglur um breytingu á reglum um millibankagreiðslukerfi Seðlabanka Íslands nr. 1030/2020.
Þjónustuver og útibú Arion banka verða lokuð þann 31. desember en við tökum fram að netbanki og Arion appið verða vitaskuld aðgengileg rétt eins og alla aðra daga ársins.
Með hátíðarkveðjum,
starfsfólk Arion