Arion er banki ársins að mati The Banker – fimmta árið í röð
.jpg)
Hið virta fjármálatímarit, The Banker, sem gefið er út af The Financial Times, hefur valið Arion sem banka ársins á Íslandi árið 2025. Er þetta fimmta árið í röð sem Arion banki hlýtur nafnbótina.
Í rökstuðningi sínum vísar The Banker meðal annars til sterkrar arðsemi Arion og markvissra aðgerða til að auka þjónustuframboðið. Nefnir The Banker þar til sögunnar kaup á Arngrímsson Advisors, sem fjölgaði valkostum viðskiptavina bankans þegar kemur að fjárfestingum í erlendum sjóðum, sérstaklega á sviði sérhæfðra fjárfestinga. Einnig er horft til áforma um samruna Arion og Kviku og áframhaldandi fjárfestingar í stafrænum lausnum.
Fyrr á árinu var Arion banki valinn banki ársins 2025 á Íslandi af fjármálatímaritinu Euromoney, annað árið í röð.