Fræðslufundur á Facebook um fasteignakaup og hvernig viðbótarlífeyrissparnaður nýtist til fasteignakaupa

Snædís Ögn Flosadóttir, Jarþrúður Birgisdóttir og Júlí Heiðar Halldórsson fara yfir allt það helsta sem þarf að vita um íbúðarkaup og þá sér í lagi fyrstu kaup.
Meðal annars verður farið yfir hvað þarf að hafa í huga varðandi greiðslugetu, lánstíma, eigið fé, varasjóði, verðtryggingu og vexti. Þá verður farið yfir hvernig viðbótarlífeyrissparnaður nýtist til fasteignakaupa; grunnreglurnar og hvaða leiðir eru í boði.
Fundurinn verður haldinn á Facebook mánudaginn 7. desember kl. 10.00 og stendur yfir í rúmlega klukkustund.