Opinn Startup Reykjavik viðburður miðvikudaginn 27. júlí kl. 16.30

Opinn Startup Reykjavik viðburður miðvikudaginn 27. júlí kl. 16.30

Opinn Startup Reykjavik viðburður miðvikudaginn 27. júlí kl. 16.30 - mynd

Arion banki og Startup Reykjavík verða með opinn viðburð miðvikudaginn 27. júlí þar sem fimm teymi af þeim tíu sem taka þátt í Startup Reykjavík í ár kynna viðskiptahugmyndir sínar. Er þetta seinni hópurinn af tveimur sem kynna hugmyndir sínar en kynningin hjá fyrri hópnum, sem haldin var 7. júlí, gekk afar vel fyrir sig.

Auk kynninga frá teymunum fimm mun Hjálmar Gíslason frá Qlik veita gestum innsýn í þróun vöru fyrir alþjóðamarkað, aðlögun á viðskiptamódeli og hvað starf á alþjóðamarkaði felur í sér. Viðburðurinn fer fram í höfuðstöðvum Startup Reykjavík, Borgartúni 20, 3. hæð, miðvikudaginn 27. júlí kl. 16.30 og eru allir hjartanlega velkomnir.

Nánar um viðburðinn

Startup Reykjavík er viðskiptahraðall þar sem Arion banki fjárfestir í tíu teymum og veitir þeim stuðning til að þróa sínar viðskiptahugmyndir. Startup Reykjavík er í eigu Arion banka og er samstarfsverkefni bankans og Icelandic Startups.