Arion banki breytir vöxtum

Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands breytast inn- og útlánavextir Arion banka í dag, 21. desember.
Breytilegir vextir þegar veittra lána hækka 30 dögum eftir tilkynningu nema yfirdráttalán og innlán sem taka breytingum samdægurs. Öll ný útlán bera nýju vextina.
Breytingarnar eru eftirfarandi:
Óverðtryggð íbúðalán
- Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 7,84%
- Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir eru óbreyttir og eru áfram 7,75%
Kjörvextir
- Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,25 prósentustig.
Yfirdráttur og greiðsludreifing
- Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 0,25 prósentustig
Bílalán
- Kjörvextir bílalána hækka um 0,25 prósentustig.
Innlán
- Breytilegir óverðtryggðir vextir sparnaðarreikninga hækka um allt að 0,35 prósentustig. Vextir veltureikninga hækka um 0,10 prósentustig.
Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.
Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.