Íbúðalán Grindvíkinga hjá Arion

Íbúðalán Grindvíkinga hjá Arion

Mynd: grindavik.is - myndMynd: grindavik.is

Við hjá Arion banka höfum eins og þjóðin öll fylgst náið með þróun mála í Grindavík og dáðst að samstöðu og æðruleysi Grindvíkinga. Við höfum verið í góðu sambandi við þá viðskiptavini okkar sem eru með íbúðalán hjá okkur vegna húsnæðis í Grindavík og eins og aðrir bankar þá frystum við greiðslur íbúðalána og felldum niður vexti og verðbætur í sex mánuði til að skapa tímabundið skjól.

Nú þegar mynd er komin á úrræði stjórnvalda bjóðum við viðskiptavinum okkar, sem selja fasteign sína til fasteignafélagsins Þorkötlu, að halda föstu vöxtunum og færa þau vaxtakjör yfir á nýtt lán, sömu fjárhæðar, vegna nýrrar fasteignar. Ef tekið er viðbótarlán þá er það á kjörum nýrra lána.

Þeir Grindvíkingar sem selja Þorkötlu fasteign sína þurfa ekki að greiða lántökugjald vegna íbúðaláns hjá Arion þegar ný fasteign er keypt. Almennt gildir fyrir alla sem voru með lögheimili í Grindavík 10. nóvember 2023 að veðhlutfall nýrra íbúðalána má vera allt að 85% og hlutfall greiðslubyrði láns af ráðstöfunartekjum má vera allt að 40%.