23. desember 2014
Guðmundur Ólafsson útibússtjóri bankans á Egilsstöðum ásamt Birni Ingimarssyni bæjarstjóra við undirritunina sem fram fór í Egilsstaðahúsinu.
Arion banki fjármagnar fjármagnar Fljótsdalshérað við innlausn leigusamninga
Arion banki og sveitarfélagið Fljótsdalshérað skrifuðu í gær undir lánssamning að upphæð 700 m.kr., en samið var við bankann að undangengnu útboði sem fram fór í nóvember síðastliðnum.
Fjármögnunin gefur Fljótsdalshéraði möguleika á að leysa til sín leiguskuldbindingar Eignarhaldsfélagsins Fasteignar með kaupum á sex deilda leikskólahúsnæði við Skógarlönd á Egilsstöðum og gervigrasvelli ásamt þjónusturými í Fellabæ.