Hringt fyrir jafnrétti kynjanna í Kauphöllinni

Hringt fyrir jafnrétti kynjanna í Kauphöllinni

Hringt fyrir jafnrétti kynjanna í Kauphöllinni - mynd

Iða Brá, aðstoðarbankastjóri Arion, og Halla Tómasdóttir, forstjóri B Team, hringdu í sameiningu bjöllu fyrir jafnfrétti kynjanna í Kauphöll Íslands á Alþjóðadegi kvenna 8. mars síðastliðin, á sameiginlegum viðburði kauphalla á heimsvísu.

Iða Brá og Halla voru heiðursgestir á viðburðinum sem Nasdaq Iceland stóð fyrir í samstarfi við Global Compact á Íslandi, UN Women Ísland og FKA – Félag kvenna í atvinnulífinu.

Þema dagsins var Invest in women: Accelerate progress sem vísar í að valdefling og framgangur kvenna sé lykillinn að velsæld. Við tökum að sjálfsögðu undir þau orð enda eru þau mjög í anda Konur fjárfestum átaksverkefnis Arion.