01. mars 2017
Kynningarfundur um EIF útlán til fyrirtækja
Föstudaginn 3. mars kl. 12.00 verður kynningarfundur um EIF lán í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Þar mun Jónas Páll Jakobsson, sérfræðingur á viðskiptabankasviði, fara yfir fyrirkomulag lánsins, skilyrði sem þarf að uppfylla og svara spurningum gesta.
EIF lán eru hagkvæm fjármögnun til að hrinda í framkvæmd nýsköpunar- og þróunarverkefnum og eru sérstaklega ætluð litlum og meðalstórum fyrirtækjum.
Verið hjartanlega velkomin. Skráning fer fram hér.