Aðalstyrktaraðili Sjávarútvegsráðstefnunnar 2015

Aðalstyrktaraðili Sjávarútvegsráðstefnunnar 2015

Arion banki er aðalstyrktaraðili Sjávarútvegsráðstefnunnar 2015 , sem haldin er árlega og er aðkoma bankans sem fyrr margþætt. Gefur bankinn út sérstakt sjávarútvegsrit í tengslum við ráðstefnuna. Í ritinu er að finna greiningar sem eru unnar af hagfræðingum Sjávarklasans í samvinnu við sérfræðinga Greiningadeildar Arion banka. Um er að ræða greiningar á ólíkum þáttum í starfsumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja og mögulegum framtíðaráhrifum á greinina. Ritið verður til dreifingar á ráðstefnunni. Bankinn verður með sýningarbás þar sem sérfræðingar bankans verða til skrafs og ráðagerða. 

Þá mun Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, stýra einni af fjölmörgum málstofum ráðstefnunnar og Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði bankans, flytja erindi um uppbyggingu fiskeldis á Íslandi.