28. mars 2024
Þjónusta í appi og netbanka komin í lag

Við höfum náð að leysa úr þeim vanda sem varð þess valdandi að virkni í appi og netbanka var skert í upphafi þessarar viku.
Nú er því aftur hægt að sækja um lán og stofna kredit- og debetkort og innlánsreikninga í appi og netbanka.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.