10. október 2019
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19
Arion banki lækkar vexti
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánsvextir Arion banka breytast frá og með deginum í dag.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir vextir lækka um 0,29% og verða 5,49%
- Bílalán og bílasamningar lækka um 0,25%
- Almennir óverðtryggðir kjörvextir lækka um 0,10%
- Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga lækka um allt að 0,25%.
- Hvað innlán varðar þá munu breytilegir innlánsvextir bankans í mörgum tilfellum haldast óbreyttir þrátt fyrir stýrivaxtalækkun en þó munu vextir nokkurra innlánareikninga lækka um 0,05%-0,25%.
Nánar má lesa um vexti bankans í vaxtatöflu bankans.