29. september 2023
Mynd: Arnarlax.is
Til hamingju Arnarlax með skráningu á First North-markaðinn
Mynd: Arnarlax.isÍ morgun hófust viðskipti með hlutabréf Arnarlax á First North-markaði kauphallarinnar. Er Arnarlax sjöunda fyrirtækið á þeim markaði og það verðmætasta. Arnarlax hefur verið skráð í norsku kauphöllinni frá 2019 og er því frá og með deginum í dag tvískráð.
Þessu var fagnað við Bíldudalshöfn í morgun þegar Björn Hembre forstjóri Arnarlax hringdi inn upphaf viðskipta við hátíðlega athöfn.
Arion banki var ráðgjafi félagsins í tvískráningunni.