Okkar fólk tekur þátt í WOW Cyclothon sem hefst í kvöld
Á dögunum ákváðu nokkrir starfsmenn bankans að taka þátt í WOW Cyclothon. Fólkið okkar keppir í B-flokki sem inniheldur 10 manna lið og mun leggja af stað kl. 20:00 frá Hörpu í kvöld. Allt söfnunarfé keppninnar í ár rennur til bæklunarskurðdeildar Landspítalans og hefur markið verið sett á að safna 10 milljónum. Söfnunin er nú þegar komin í rúmar 5 milljónir en áheitasöfnuninni lýkur formlega á miðnætti mánudaginn 30. júní.
Hér má fylgjast með söfnun okkar fólks en hvert lið safnar sínum áheitum.
Hér má fylgjast með hvar liðin eru stödd.
Reiðmennirnir eru með facebook síðu undir nafninu WOW Reiðmenn Arion banka og nota "taggið" #wowarion þegar þeir setja myndir á facebook og instagram. Hægt er að styrkja málefnið með sms áheitum í eftirfarandi símanúmer:
Upphæð: 1000 kr Sendið SMS skilaboðin: 1048
í símanúmerið: 907 1501
Upphæð: 3.000 kr
Sendið SMS skilaboðin: 1048
í símanúmerið: 907 1503
Upphæð: 5.000 kr
Sendið SMS skilaboðin: 1048
í símanúmerið: 907 1505
Upphæð: 10.000 kr
Sendið SMS skilaboðin: 1048
í símanúmerið: 907 1510