04. október 2016
Ráðstefna um Lean í Arion banka – miðlum af okkar reynslu
Fimmtudaginn 6. október mun Arion banki halda ráðstefnu um straumlínustjórnun (e. Lean Management) í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni 19 frá kl. 8.30-10.40.
Frá árinu 2012 hefur bankinn unnið samkvæmt hugmyndafræði straumlínustjórnunar sem snýst í meginatriðum um að koma í veg fyrir sóun og auka afköst og skilvirkni. Við viljum deila okkar reynslu, hvað hefur gengið vel og hvað má læra af vegferðinni.
Nánari upplýsingar og skráning hér.