Arion banki greiðir upp eftirstöðvar skuldabréfs Kaupþings

Arion banki greiðir upp eftirstöðvar skuldabréfs Kaupþings

Arion banki keypti í dag til baka eftirstöðvar skuldabréfs sem gefið var út til Kaupþings sem hluti af aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda til losunar fjármagnshafta. Höfuðstóll skuldabréfsins við útgáfu var USD 747.481.000 eða um 97 milljarðar íslenskra króna á gengi þess tíma. Eftirstöðvar skuldabréfs sem Arion banki keypti til baka í dag eru að nafnvirði USD 100.000.000, eða sem nemur að jafnviðri um 10 milljörðum íslenskra króna. Endurkaupin eru þáttur í lausafjár- og skuldastýringu Arion banka.