Fleiri skref stigin í átt að pappírslausri starfsemi – útprentun á dagatölum hætt
Um áramótin mun Arion banki ekki útbúa og senda borðdagatöl til viðskiptavina líkt og venjan hefur verið. Segja má að ákvörðunin sé tímanna tákn þar sem aukin tölvu- og snjallsímanotkun hefur það í för með sér að fólk nýtir tæknina sífellt meira til að skipuleggja tímann sinn. Ákvörðunin er einnig í takt við stefnu bankans um að sýna umhverfinu umhyggju og virðingu, meðal annars með því að auka hlutdeild pappírslausra viðskipta. Á síðasta ári prentaði bankinn út 69 þúsund dagatöl og er því um verulegan pappírssparnað að ræða.
Arion banki undirritaði loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar í nóvember á síðasta ári og síðan þá hefur verið unnið að því með markvissum hætti að kortleggja kolefnisspor bankans og draga úr mengun í starfseminni. Bankinn hefur nú þegar rafvætt um helming bílaflotans í starfsemi sinni og vinnur að því að auka endurvinnslu og minnka sorp. Undanfarin ár hefur náðst góður árangur í að draga úr pappírsnotkun í starfseminni nú síðast með því að gefa viðskiptavinum tækifæri á að stofna til viðskipta með rafrænum skilríkjum.
Bankinn hefur sett sér eftirfarandi markmið í umhverfismálum
- Að flokka úrgang frá bankanum eins og hægt er hverju sinni.
- Að fara sparlega með orku í starfsemi sinni.
- Að nýta sér umhverfisvænar lausnir við prentun pappírs með nýrri tækni.
- Að hvetja og styðja starfsmenn til að hafa umhverfismál að leiðarljósi í starfi og heima fyrir.
- Að velja umhverfisvæna vöru og/eða þjónustu við innkaup þar sem því verður við komið.
- Að stefna að aukinni hlutdeild pappírslausra viðskipta.