Fræðslufundur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar

Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar. Í dag, þriðjudaginn 30. október, verður opinn fræðslufundur um lífeyrismál í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni 19 kl. 16.30-17.30.
Á fundinum verður farið yfir helstu atriði sem ber að hafa í huga varðandi útgreiðslur lífeyrissparnaðar svo sem reglur um útgreiðslur, skattalega meðferð lífeyrissparnaðar og samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun.
Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar og eru allir hjartanlega velkomnir.
Skráning fer fram hér.