Iða Brá Benediktsdóttir ráðin framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka
Iða Brá Benediktsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka og tekur við starfinu 1. júlí. Iða Brá hefur setið í framkvæmdastjórn bankans frá febrúar 2016 þegar hún tók við starfi framkvæmdastjóra fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Iða Brá tekur við starfinu af Helga Bjarnasyni sem nýverið hætti störfum hjá bankanum.
Fyrst um sinn mun Freyr Þórðarson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka, jafnframt sinna starfi framkvæmdastjóra fjárfestingarbankasviðs.
Iða Brá er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með MSc í fjármálum frá Erasmus Graduate School of Business í Hollandi og með próf í verðbréfaviðskiptum. Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999 þegar hún hóf störf í greiningardeild bankans. Frá þeim tíma hefur hún gegnt ýmsum störfum innan bankans, m.a. verið forstöðumaður samskiptasviðs, einkabankaþjónustu og í fjárstýringu bankans. Iða hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja; Sparisjóðs Ólafsfjarðar, AFL sparisjóðs, fasteignafélagsins Landfesta og HB Granda hf.
Um viðskiptabankasvið Arion banka
Viðskiptabankasvið Arion banka veitir einstaklingum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum vandaða fjármálaþjónustu. Á vegum viðskiptabankasviðs eru starfrækt 24 útibú og þjónustuver auk þess sem mikil áhersla er lögð á stafræna þjónustu sem m.a. er veitt í netbanka Arion banka og Arion appinu. Alls eru um 350 stöðugildi á sviðinu.