Erlendir tölvuþrjótar herja á viðskiptavini fjármálafyrirtækja

Erlendir tölvuþrjótar herja á viðskiptavini fjármálafyrirtækja

Svo virðist sem erlendir tölvuþrjótar herji nú aftur á viðskiptavini fjármálafyrirtækja hér á landi. Um er að ræða tölvupóstsendingar og í póstinum er tengill inn á sýndarvefsíðu sem sögð er vera netbanki viðkomandi fjármálafyrirtækis og viðtakendur hvattir til að innskrá sig.

Því er rétt að árétta að Arion banki sendir aldrei út tölvupóst þar sem farið er fram á að viðtakandi gefi upp auðkenni sín og viljum við brýna fyrir viðskiptavinum að smella ekki á þessa tengla. Þegar viðskiptavinir skrá sig í Netbankann þá á alltaf að gera það í gegnum tengil á forsíðu bankans.