06. júní 2019
Bíla- og tækjafjármögnun Arion banka flytur í Smáraútbú

Föstudaginn 7. júní mun starfsemi bíla- og tækjafjármögnunar Arion banka opna í Smáraútibúi í Kópavogi.
Undanfarin ár hefur starfsemin verið í Borgartúni 18 en flytur nú alfarið yfir í Kópavoginn. Í Smáraútibúi er góð aðstaða fyrir móttöku viðskiptavina sem og samstarfsaðila og alltaf heitt á könnunni. Eru þessar breytingar liður í að bjóða þægilegri bankaþjónustu.
Nánari upplýsingar um bíla- og tækjafjármögnun Arion banka má finna hér.