Líður að lokum þjónustu okkar á Keflavíkurflugvelli

Líður að lokum þjónustu okkar á Keflavíkurflugvelli

Líður að lokum þjónustu okkar á Keflavíkurflugvelli - mynd

Nú liggur fyrir niðurstaða í útboði Isavia varðandi fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli næstu árin. Arion banki sendi inn metnaðarfullt tilboð varðandi áframhaldandi fjármálaþjónustu en niðurstaðan er sú að annar rekstraraðili varð hlutskarpari í útboðinu og mun því taka við fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli 1. febrúar næstkomandi.

Við erum stolt af þeirri starfsemi sem við höfum verið með á Keflavíkurflugvelli síðan 2016. Þjónusta okkar hefur einkennst af metnaði til að taka vel á móti öllum þeim sem fara um flugvöllinn og hefur starfsfólk okkar staðið sig frábærlega, á stundum við krefjandi aðstæður.

Við óskum nýjum rekstraraðila velfarnaðar í sínum störfum og þökkum fyrir okkur.