07. nóvember 2022
Stuðningur við Krabbameinsfélagið
Arion banki og Vörður afhentu Krabbameinsfélaginu samtals 2,2 milljónir króna sem eru bæði styrkur frá félögunum og afrakstur söfnunar frá kvennakvöldi sem haldið var í höfuðstöðvum félaganna.
Kvennakvöldið var haldið í tilefni af Bleikum október til styrktar Bleiku slaufunni og Krabbameinsfélaginu. Viðburðurinn, sem Arion banki og Vörður stóðu fyrir, gekk vel og hlýddu gestir á áhugaverð erindi og glöddust saman. Borgartúnið hefur sjaldan verið bleikara en þetta kvöld.