Vel heppnaður HönnunarMars að baki

Vel heppnaður HönnunarMars að baki

Á sunnudaginn lauk HönnunarMars, þeim áttunda í röðinni. Við náðum tali af Höllu Helgadóttur, framkvæmdastjóra Hönnunarmiðstöðvar, ræddum við hana um hátíðina og báðum hana að fara yfir nýliðna helgi. Skiljanlega hefur hún verið vakin og sofin yfir hátíðinni síðustu vikur en er að lenda.

„Ég er nú bara furðu góð, þetta tekur mikla orku en gefur líka mikla orku, sérstaklega ef vel gengur og þetta gekk ótrúlega vel,“ segir Halla.

Hún segir þá staðreynd að nú sé betra árferði í samfélaginu en rétt eftir kreppu hafa vakið hjá sér dálítinn ugg.

„Ég búin að vera að velta því fyrir mér hvort þetta árferði hefði letjandi áhrif á verkefnið því það er þannig að í kreppuástandi verður meiri sköpun. Mér til mikillar ánægju þá fannst mér það alls ekki og ég var að sjá marga hluti sem mig langaði virkilega í.“

Almennt meiri gæði

HönnunarMars var samanþjappaðri nú en oft áður, það voru færri og stærri sýningar á þrengra svæði og segir Halla það hafa reynst vel.

„HönnunarMars er alltaf svolítið dreifður og má alveg vera það. En í fyrra var hann mikið dreifður og það voru margar litlar sýningar út um alla borg. En það tókst vel að minnka umfangið og það voru almennt meiri gæði í ár. Það er almenn framþróun í öllu verkefninu og hjá hönnuðunum sjálfum.“

Í ár voru, eins og fyrri ár, margir erlendir gestir, um 3-400 áætlar Hönnunarmiðstöð.

„Þetta er að stórum hluta fagfólk sem er hér í ákveðnum tilgangi, er að leita eftir samstarfi, leita að hönnuðum til þess að taka þátt í sýningum.“

Skapandi öfl að koma sterkt inn í viðskiptalífið

Design talks markaði upphaf hátíðarinnar að vanda en þar hittast alþjóðlegir hönnuðir úr öllum geirum; íslenskir hönnuðir, kaupendur, stjórnvöld og fólk úr viðskiptalífinu.

„Á þessari ráðstefnu erum við að leiða saman mjög ólíka hópa og það er mikil áskorun. Við erum að reyna að höfða til okkar hönnuða og þeir eru mjög ólíkir innbyrðis; fatahönnuðir, vöruhönnuðir, arkitektar og grafískir hönnuðir, þetta eru hópar sem eru kannski ekki endilega alltaf saman á einhverjum málþingum. Áskorunin er sú að fá þá til þess að hlusta og hafa áhuga á öllu, ekki bara sínu sviði og í ár tókst þetta sérstaklega vel. Svo erum við líka að tala til viðskiptalífsins því við erum að tala um hluti sem varða viðskiptaheiminn og stjórnkerfið. Við erum að tala um miklar breytingar þar því að skapandi öfl eru að koma miklu sterkari inn í viðskiptalífið. Þarna voru aðilar úr viðskiptalífinu, markaðsfræðingar og stefnumótunarfræðingar úr ráðuneytunum,“ segir Halla.

Mikil grasrótarhátíð

Þrátt fyrir að veðrið á laugardaginn hafi ekki verið vinsamlegt skipuleggjendum HönnunarMars setti það ekki strik í reikninginn þannig að það kæmi að sök.

„Laugardagurinn hefur alltaf verið mjög stór, þá kemur almenningur og kynnir sér allt sem er á HönnunarMarsinum. Það voru allir glaðir og létu veðrið ekki stoppa sig.“

Sjálf var Halla vitanlega á flandri út um allt þessa daga, eins og fyrri ár.

„Ég fór mjög víða og náði örugglega að sjá 80% að viðburðunum. Ég legg mig fram við að reyna að sjá sem flestar sýningar en næ þeim auðvitað aldrei öllum. Það skiptir máli að ég viti hvað er að gerast og það skiptir líka þátttakendur máli að við hjá Hönnunarmiðstöð séum sýnileg og sýnum þeim stuðning. Við skiptum á milli okkar að fara á allar opnanir til dæmis. Það er mitt hlutverk að hafa yfirsýn og sjá hver framþróunin er. Þetta er svo mikil grasrótarhátíð, verkefnin eru sjálfsprottin og við erum stuðningur og utanumhald.

Hönnunarmars ýtir við fólki

„Það tekur mig stundum nokkra daga að átta mig á hvað það er sem er merkilegt og hvernig marsinn er frábrugðinn þeim sem á undan komu. Áhyggjur mínar snúast um að hann yrði ekki betri en í fyrra, mér er alltaf mjög létt þegar ég skynja að það hefur orðið framför. Þetta eru orðin átta ár svo það kemur kannski að því að ég þurfi að sætta mig við að hann sé ekki betri og kannski verri. En ég vona innilega að ég þurfi ekki að gera það,“ segir Halla.

HönnunarMars er orðinn mjög mikilvægur hluti af lífi íslenskra hönnuða.

„Það sem hefur gerst með tímanum er að hönnunarMars hefur orðið eins konar „deadline“ fyrir hönnuði til þess að vinna út frá, hönnuðir miða við hann til þess að koma með nýjar vörur, þannig að þetta verður ákveðinn taktur. Fólk veit hvað það er að fara að gera og ætlar að ná að klára fyrir HönnunarMars. Mörgum finnst þetta þægilegt og þetta ýtir við fólki að klára hluti.“

Að ári verður HönnunarMars haldinn 23.-26. mars.