Beingreiðsluleikur Arion banka
Beingreiðsluleikur Arion banka hófst í júlí og stendur yfir til loka september.
Markmið leiksins er að viðskiptavinir skrái reikningana sína í beingreiðslu og njóti þeirra kosta sem því fylgir. Reikningar sem eru skráðir í beingreiðslu eru alltaf greiddir á réttum tíma og því ekki hætta á dráttarvöxtum, svo ekki sé talað um aukin þægindi fyrir viðskiptavini.
Allir sem skrá reikninga í beingreiðslu á meðan leikurinn stendur yfir eiga möguleika á að vinna iPhone 6. Því fleiri reikningar sem eru skráðir, því meiri líkur á að vinna.
Vinningshafi í beingreiðsluleik Arion banka í ágúst er Magnús Jónsson. Magnús er viðskiptavinur í útibúinu í Vesturbænum. Hann skráði reikning í beingreiðslu og hlaut iPhone 6 í verðlaun.
Við óskum Magnúsi innilega til hamingju með nýja símann og vonum að vinningurinn komi sér vel.
Á myndinni eru Helgi Bjarnason, framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs og vinningshafinn, Magnús Jónsson.