14. apríl 2016
Opnun sýningar á verkum Kristins E. Hrafnssonar síðastliðinn laugardag
Síðastliðinn laugardag, 9. apríl, opnaði sýning á verkum Kristins E. Hrafnssonar í Borgartúni 19.
Sýningin hófst á áhugaverðum fyrirlestri Gunnars J. Árnasonar listheimspekings um verk Kristins. Opnunin var vel sótt en um 130 manns mættu í höfuðstöðvarnar og hlýddu á fyrirlesturinn og skoðuðu sýninguna.
Meðfylgjandi eru myndir frá opnunni.