04. apríl 2016
Útibúið í Hveragerði flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði
Í dag, mánudaginn 4. apríl, opnar útibúið í Hveragerði í nýju húsnæði í Sunnumörk 2. Undanfarnar vikur hafa staðið yfir miklar framkvæmdir í húsinu og er útibúið hið glæsilegasta.
Af þessu tilefni verður útibúið opið til kl. 18.00 í dag og verður gestum og gangandi boðið upp á rjúkandi kaffi og meðlæti. Ari, vinalegi apinn úr Sparilandi, verður á staðnum á milli kl. 15.00-17.00 og eru allir velkomnir.