Arion banki breytir vöxtum óverðtryggðra íbúðalána með fasta vexti
.jpg)
Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands munu vextir óverðtryggðra íbúðalána sem bera fasta vexti í þrjú ár hækka um 0,7% og verða 9,2%.
Breytingar á öðrum vöxtum inn- og útlána Arion banka verða tilkynntar á næstu dögum.
Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.