Opnunartími yfir hátíðarnar

Útibú okkar og þjónustuver verða lokuð á aðfangadag, jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag. Aðra daga milli jóla og nýárs verður opið hjá okkur á hefðbundnum tíma.
Þann 2. janúar fylgja útibú Arion og Varðar hefðbundnum opnunartíma. Þjónustuverið okkar verður opið frá kl. 9:00.
Við minnum á að í Arion appinu og netbankanum er hægt að stunda öll helstu bankaviðskipti og eins má alltaf leita svara í netspjallinu okkar. Í neyðartilvikum, sem tengjast debet- og kreditkortum, má hringja í síma 444 7000 og velja 5 og þá færðu þegar samband við neyðarþjónustuna okkar.
Hafið það gott yfir hátíðirnar!