25. nóvember 2016
Vel sóttur fræðslufundur um greiðslur úr lífeyrissparnaði
Um 150 manns mættu á vel heppnaðan fræðslufund um greiðslur úr lífeyrissparnaði sem haldinn var í höfuðstöðvum Arion banka miðvikudaginn 24. nóvember.
Markmið fundarins var að kynna reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar, skattalega meðferð lífeyrissparnaðar og samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun.
Fyrirlesari fundarins var Snædís Ögn Flosadóttir, rekstrarstjóri Lífeyrisauka og framkvæmdastjóri EFÍA og LSBÍ.