Útskrift vottaðra fjármálaráðgjafa

Útskrift vottaðra fjármálaráðgjafa

Útskrift vottaðra fjármálaráðgjafa - mynd

Þann 24. maí fór fram útskrift úr námi til vottunar fjármálaráðgjafa en þá útskrifuðust 22 aðilar úr náminu, þar af 8 starfsmenn Arion banka. Eftir þessa útskrift eru 65 vottaðir fjármálaráðgjafar í starfi hjá Arion banka.

Markmið vottunarinnar er að samræma þær kröfur sem gerðar eru til ráðgjafa og tryggja að þeir búi yfir nauðsynlegri þekkingu og færni í starfi. Námið spannar þætti fjármálamarkaðar og þjóðhagfræði auk lögfræði og siðfræði. Einnig fengu nemendur þjálfun í almennri ráðgjafafærni. Náminu lauk með prófum til að staðfesta færni þátttakenda.

Samtök fjármálafyrirtækja standa að verkefninu um vottun fjármálaráðgjafa ásamt fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Samtökum starfsfólks fjármálafyrirtækja, Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Bifröst.

Eftirtaldir starfsmenn Arion banka útskrifuðust að þessu sinni sem vottaðir fjármálaráðgjafar:

  • Elín Björg Arinbjarnardóttir, Egilsstöðum
  • Erla Stefánsdóttir, þjónustukjarna
  • Guðrún Sigurðardóttir, Akureyri
  • Helga Jónína Guðmundsdóttir, Sauðárkróki
  • Hjörtur Torfi Halldórsson, Höfða
  • Jórunn Ólafsdóttir, þjónustukjarna
  • Tara Elíasdóttir, Borgartúni 18
  • Þóra Björk Gísladóttir, Borgartúni 18