12. júní 2015
Arion banki lokar klukkan 13:00 föstudaginn 19. júní - starfsfólk fagnar 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna
Í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna þann 19. júní mun Arion banki gefa starfsfólki frí eftir hádegi til að það geti tekið þátt í hátíðarhöldum vegna afmælisins.
Öll útibú bankans verða lokuð frá klukkan 13.00. Önnur starfsemi bankans verður takmörkuð en verðbréfa- og gjaldeyrismiðlun bankans verður opin. Hraðbankar Arion banka, netbankinn og Arion appið verða sem fyrr aðgengileg viðskiptavinum.
Til hamingju með 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna.