Einar Gunnar stýrir umræðum á hádegisfundi um fjármálatækni (FinTech)
Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður nýsköpunarmála hjá Arion banka, stýrði umræðum á hádegisfundi um fjármálatækni (FinTech) sem haldinn var á vegum Klak Innovit í húsakynnum Gamma. Í pallborðinu voru þeir Arnar Jónsson, framkvæmdastjóri Sway, Einar Þór Gústafsson, framkvæmdastjóri vöruþróunar Meniga og Sigurður Ingólfsson, framkvæmdastjóri Invector.
Einar Gunnar hóf fundinn á því að ræða um FinTech á almennum nótum og hvaða ógnanir og tækifæri tæknin hefur fyrir bæði ung fyrirtæki og fjármálastofnanir.
Kjarninn streymdi beint frá fundinum og hér má nálgast upptökuna.