Söfnunarátak Reykjadals og ljúfir tónar
Undanfarið hefur Arion banki tekið þátt í söfnunarátaki á vegum Háskóla Íslands fyrir Reykjadal, sem eru sumarbúðir fyrir börn með fötlun.
Bankinn styrkti gerð myndbands og greiddi til Reykjadals sem nemur 100 krónum fyrir hvert „Like“ sem myndbandið fékk á Facebook, upp í tíu þúsund ,,Like“. Náðist það markmið og gott betur og því styrkir bankinn Reykjadal um eina milljón króna, auk þess styrks sem bankinn veitti í tilefni 80 ára afmælis Skjaldar, starfsmannafélags Arion banka.
Hægt er að sjá myndband Reykjadals hér.
Síðastliðinn mánudag komu forsvarsmenn Reykjadals í Borgartún 19 og sögðu frá söfnunarátakinu. Söngvarinn Valdimar flutti nokkur hugljúf lög að þessu tilefni.