Arion banki breytir vöxtum

Arion banki breytir vöxtum

Arion banki breytir vöxtum - mynd

Í dag, miðvikudaginn 11. september, taka eftirfarandi breytingar á verðtryggðum útlánavöxtum Arion gildi:

Íbúðalán
  • Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,60 prósentustig og verða 4,64%
  • Verðtryggðir fastir íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 4,74%
Kjörvextir
  • Verðtryggðir breytilegir kjörvextir hækka um 0,75 prósentustig og verða 6,2%

Breytingar á vöxtum verðtryggra útlána eru meðal annars tilkomnar vegna hækkunar á ávöxtunarkröfu verðtryggðrar fjármögnunar.

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.

Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.