01. mars 2018
Skýrslur Arion banka fyrir árið 2017
Arion banki hefur gefið út ársskýrslu og áhættuskýrslu fyrir árið 2017. Skýrslurnar eru á rafrænu formi og því aðeins aðgengilegar á vef bankans. Áður hafði ársreikningur Arion banka fyrir árið 2017 verið gerður aðgengilegur, einnig á vef bankans.
Auk umfjöllunar um svið bankans, helstu verkefni og lykiltölur ársins 2017 inniheldur ársskýrsla Arion banka m.a. umfjöllun um samfélagsmál og sérstaka umhverfisskýrslu auk þess sem ófjárhagslegum mælikvörðum eru gerð góð skil.