Sverrir Örn Sverrisson tekur við starfi útibússtjóra Arion banka á Egilsstöðum

Sverrir Örn Sverrisson tekur við starfi útibússtjóra Arion banka á Egilsstöðum

Sverrir Örn Sverrisson tekur við starfi útibússtjóra Arion banka á Egilsstöðum - mynd

Sverrir Örn Sverrisson hefur hafið störf sem útibússtjóri Arion banka á Egilsstöðum. Sverrir Örn starfaði sem viðskiptastjóri hjá Arion banka á árunum 2016 til 2019 á höfuðborgarsvæðinu og sem viðskiptastjóri í útibúi bankans á Sauðárkróki í rúmt ár þar á undan. Sverrir hefur sterkar tengingar við Austurland þar sem hann hefur stundað nám og sinnt ýmsum störfum, m.a. í útibúi Arion banka og sem viðskiptastjóri Símans.

Sverrir er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst og með M.A. í alþjóðaviðskiptum og hagfræði frá Korea University.