Fáein góð sparnaðarráð

Fáein góð sparnaðarráð

Fáein góð sparnaðarráð - mynd

Það er aldrei of seint að byrja að spara. Hins vegar getur verið svolítið erfitt að gera einmitt það: Að byrja. Því að stóra spurningin er …

… hvar byrjar maður eiginlega?

Settu sparnaðinn í áskrift

Góð byrjun væri auðvitað að leggja fasta upphæð fyrir mánaðarlega. Að temja sér nýjar venjur krefst þó talsverðs átaks og oft kemst slíkt ekki strax inn í rútínuna. Það líða nokkrir mánuðir og við steingleymum að leggja nokkuð fyrir.

Ein þægileg leið til að bæta úr því er að setja sparnaðinn í áskrift. Þá þarftu ekki að muna að millifæra mánaðarlega á sparnaðarreikning heldur velurðu fasta upphæð í Arion appinu sem færist sjálfkrafa milli reikninga. Þú stýrir upphæðinni sem verður hluti af mánaðarlegum útgjöldum þínum.

Verum meðvituð um í hvað peningarnir fara

Annað sparnaðarráð felst í að horfast í augu við það hvert peningarnir okkar fara og skrifa það niður, til dæmis í vasabók eða Excel. Haltu heimilisbókhald, skipuleggðu matarkaupin og leituðu uppi hagstæðustu tilboðin. Þá er alltaf gott að forgangsraða því að greiða niður dýrar skuldir til að forðast háa vexti.

Sparnaðurinn hjálpar okkur að stjórna eigin lífi

Fyrirhyggja í fjármálum getur hjálpað okkur að hrinda draumum og ævintýrum í framkvæmd. Langar þig í heimsreisu eða nám í útlöndum? Ertu með augastað á draumaíbúðinni? Í sparnaðarmálum sannast sú gamla speki að margt stórt gerir eitt stórt. Valkostum lífsins fjölgar eftir því sem sparnaðurinn vex. Ekki hræðast fjármálin. Hafðu gaman af því að taka þau föstum tökum – og byrjaðu smátt.

 

Fleiri greinar