Landsvirkjun skrifar undir nýtt sambankalán
Arion banki tók nýverið þátt í sambankaláni til Landsvirkjunar á alþjóðlegum bankamarkaði. Lánið er fjölmynta veltilán til þriggja ára að fjárhæð 200 milljónir Bandaríkjadala. Heimilt er að framlengja lánið tvisvar um eitt ár í senn og getur lánstími því að hámarki orðið fimm ár.
Lánveitendur eru viðskiptabankar Landsvirkjunar sem eru ásamt Arion banka, Citigroup Global Markets Limited, Barclays Bank PLC, ING Bank Belgium SA/NV, Íslandsbanki hf, J.P. Morgan og Skandinaviska Enskilda Banken AB.
Með lántökunni hefur Landsvirkjun lokið við endurfjármögnun samskonar láns frá árinu 2011 sem var með lokagjalddaga í desember 2016.