Búist við 2.400 þátttakendum á Arion banka mótinu í Víkinni um helgina
Gera má ráð fyrir um 2.400 þátttakendum í yfir 400 liðum á Arion banka mótinu í fótbolta sem haldið verður nú um helgina, 13. og 14. ágúst á félagssvæði Víkings í Fossvogi. Er þetta í sjöunda sinn sem mótið er haldið en fjöldi þátttakenda hefur aukist jafnt ár frá ári og er nú búist við metþátttöku.
Arion banka mótið er fyrir 7. og 8. flokk stúlkna og drengja og er stærsta mótið þar sem bæði kynin spila á sama tíma. Mótið stendur yfir frá kl. 9.00-17.00 laugardag og sunnudag. Keppt verður á 18 völlum og verður mótið í Sparilandsbúningi. Bíbí, Blaki og Ari verða á svæðinu og allir þátttakendur fá glæsilegan Sparilandsglaðning og verðlaunapening ásamt máltíð.
Búast má við miklum fjölda fólks og skemmtilegri stemningu í Víkinni í Fossvogi um helgina þegar ungir fótboltaiðkendur ásamt stuðningsfólki koma saman.