Umsóknarferli íbúðalána stytt og einfaldað

Umsóknarferli íbúðalána stytt og einfaldað

Umsóknarferli íbúðalána stytt og einfaldað - mynd

Arion banki kynnir í dag nýjung á sviði íbúðalána. Frá og með deginum í dag er hægt að sækja um íbúðalán og undirrita fylgiskjöl með afar einföldum og þægilegum hætti með rafrænum skilríkjum á vef bankans. Þessi nýjung styttir afgreiðslutíma íbúðalána verulega og einfaldar allt umsóknarferlið. Umsækjendur geta nú farið í gegnum umsóknarferlið þegar og þar sem þeim hentar og tekið sér þann tíma sem þeir þurfa. Umsóknarferlið sjálft tekur mjög skamman tíma, en viðskiptavinir geta alltaf gert hlé á umsókninni og tekið upp þráðinn að nýju þegar þeim hentar.

Stafræn umsókn um íbúðalán á vef Arion banka byggist á nýrri kynslóð greiðslumats sem bankinn kynnti til sögunnar í desember og tekur aðeins örfáar mínútur á vef bankans. Nýja þjónustan sparar tíma og fyrirhöfn fyrir viðskiptavini þar sem þeir þurfa ekki lengur að safna saman launaseðlum, skattframtali eða öðrum gögnum heldur sækir bankinn allar lykilupplýsingar til Creditinfo og ríkisskattstjóra rafrænt.

Öll skilyrði varðandi greiðslumat og veitingu íbúðaláns eru óbreytt frá því sem áður var. Áfram er lánað fyrir allt að 80% af kaupverði en í tilfelli fyrstu kaupa er lánað allt að 85%. Lögð er rík áhersla á fræðslu og ábyrga ráðgjöf á sviði fjármála og á nýjum umsóknarvef Arion banka eru stutt fræðslumyndbönd, svör við algengum spurningum og upplýsingar um algengar lánasamsetningar. Einnig er hægt að bóka fund með fjármálaráðgjafa í útibúi bankans, panta símtal og senda fyrirspurnir með einföldum hætti.

Lántökugjald Arion banka er óbreytt, 49.900 kr. óháð lánsfjárhæð en ekkert lántökugjald er við fyrstu fasteignakaup. Greiðslumatið er endurgjaldslaust en umsækjendur greiða þann kostnað sem til fellur vegna uppflettinga hjá þriðja aðila, m.a. í skuldastöðukerfi og ökutækjaskrá. Sá kostnaður er 3.200 kr. fyrir einstakling og 5.500 kr. fyrir hjón eða fólk í sambúð.

Þessi nýja stafræna þjónusta er afrakstur þróunarvinnu Arion banka sem miðar að því að auka þægindi viðskiptavina og efla þjónustu bankans. Áður hefur Arion banki m.a. kynnt stafrænar leiðir til að stofna til bankaviðskipta og dreifa kreditkortagreiðslum. Stefna Arion banka er að vera fremsti stafræni banki landsins og verður áfram unnið markvisst að þróun og innleiðingu stafrænna lausna.