Flugstöð Leifs Eiríkssonar - Arion banki fékk hæstu einkunn

Flugstöð Leifs Eiríkssonar - Arion banki fékk hæstu einkunn

Hér má sjá hugmynd að útliti væntanlegrar starfsemi Arion banka í Flugstöð Leifs Eiríkssonar - myndHér má sjá hugmynd að útliti væntanlegrar starfsemi Arion banka í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Arion banki hlaut hæstu einkunn í samkeppninni um rekstur fjármálaþjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í tilkynningu frá Isavia kemur fram að alls hafi fimm umsóknir borist frá eftirfarandi fyrirtækjum: Arion banka, Global Exchange Foreign Exchange Services, Íslandsbanka, Landsbankanum, Unicâmbio og iKort. 

Næstu skref eru samningaviðræður við Isavia um rekstur fjármálaþjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Leiði samningaviðræður til jákvæðrar niðurstöðu er mögulegt að Arion banki hefji starfsemi í flugstöðinni eftir um það bil hálft ár.

Á meðfylgjandi mynd má sjá hugmynd að útliti væntanlegrar starfsemi Arion banka í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.