Startup Reykjavik Investor Day haldinn í áttunda sinn
Föstudaginn 16. ágúst sl. fór fjárfestadagur Startup Reykjavik fram í höfuðstöðvum Arion banka í áttunda sinn. Að vanda kynntu 10 fyrirtæki sem tekið hafa þátt í viðskiptahraðlinum í sumar sína viðskiptahugmynd. Rúmlega 150 fjárfestar og aðrir gestir hlýddu á kynningarnar.
Fyrirtækin tíu sem kynntu sig voru:
| Fyrirtæki | Rekstur fyrirtækis | Vefsíða |
|---|---|---|
| Baseparking |
Bílastæðaþjónusta á Keflavíkurflugvelli sem hefur þjónustað yfir 20.000 viðskiptavini. | www.baseparking.is |
| CheckMart |
Skilvirkt innviða- og vistkerfi fyrir stafrænar verslanir. |
www.karfa.is |
| Hvíslarinn |
Hugbúnaðarlausn sem stuðlar að betri og öruggari þjónustu við sjúklinga með því að nýta snjalltækni, sjálfvirkni og gervigreind til að auka tímanýtingu og skilvirkni heilbrigðisstarfsfólks. |
|
| Íslensk gervigreind |
Stafrænn starfsmaður í skýinu sem einfaldar verkferla og þjónustu fyrirtækja. |
www.igg.is |
| Proency |
Heilsutæknilausn fyrir fagfólk sem nýtir gervigreind til þess að auka skilvirkni sálfræðilegra aðferða og auðvelda innleiðingu heilsueflingu innan fyrirtækja. |
www.proency.is |
| Rafíþróttaskólinn |
Félagslegur og stuðningsríkur vettvangur fyrir rafíþróttaspilara til þess að efla iðkendur félagslega og hjálpa þeim að stíga sín fyrstu skref í sínum rafíþróttaferli. |
www.rafithrottaskolinn.is |
| Rebutia |
Gervigreindar hugbúnaður sem velur fatnað út frá ítarlegri greiningu á líkamsbyggingu notenda og hjálpar þeim að uppgötva fatastíl sem er sniðinn að þörfum hvers og eins. |
www.rebutia.is |
| SmartSampling |
Hugbúnaður fyrir vörukynningarfyrirtæki sem býður upp á betri og skilvirkari leið til þess að fá upplýsingar frá viðskiptavinum um vörur. |
www.smartsampling.is |
| Snorricam |
Háþróað tól fyrir kvikmyndatöku sem fest er á líkamann og gerir kvikmyndagerðarfólki kleift að ná einstökum sjónarhornum. |
www.snorricam.is |
| TrackEHR |
Hugbúnaðarlausn til að miðla upplýsingum um meðferðarplan og sjúkdómsgang á öruggan og skilvirkan hátt til inniliggjandi sjúklinga á sjúkrahúsum. |
www.trackehr.is |
Frá árinu 2012 hafa um 80 fyrirtæki verið valin til þátttöku í Startup Reykjavik. Á ári hverju berast að jafnaði 150-250 umsóknir um að komast í hraðalinn og er hlutfall samþykktra umsókna því á bilinu 4-7%. Hvert og eitt fyrirtæki fær 2,4 milljónir króna í hlutafé frá Arion banka gegn 6% eignarhlut.
Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa tekið þátt í Startup Reykjavik á undanförnum árum eru fyrirtækin Florealis, Activity Stream, Authenteq, Jurt Hydroponics, Spor í sandinn og Myrkur.
Arion banki er eigandi Startup Reykjavik, sem er samstarfsverkefni bankans og Icelandic Startups.