Arion banki styður áfram við verkefni Skógræktarfélags Íslands

Arion banki styður áfram við verkefni Skógræktarfélags Íslands

Arion banki styður áfram við verkefni Skógræktarfélags Íslands - mynd

Nýlega undirrituðu Arion banki og Skógræktarfélag Íslands samning vegna áframhaldandi stuðnings bankans við félagið. Styrkurinn, sem er til þriggja ára, verður nýttur til að fjármagna verkefnið Skógarvist, skógargátt og lýðheilsa, sem er ætlað að hvetja til útivistar og bættrar lýðheilsu. Einnig nýtist styrkurinn í innleiðingu á forritinu Avenza sem ætlað er að halda utan um kortlagningu skógræktar með stafrænum hætti og þar með ná betri yfirsýn yfir útbreiðslu nýrra skóga og bindingu þeirra.

Arion banki hefur um árabil styrkt Skógræktarfélag Íslands. Bankinn hefur sett sér metnaðarfull markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og á að auki í samstarfi við Kolvið varðandi mótvægisaðgerðir. Kolviður gróðursetti um 4.700 tré til að vega upp á móti losun bankans á árinu 2020 vegna reksturs, þ.e. húsnæðis og bíla, en einnig vegna flugferða og leigubílaferða, sorps og samgangna starfsfólks til og frá vinnu.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Brynjólf Jónsson, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Íslands, Hlédísi Sigurðardóttur, verkefnastjóra samfélagsábyrgðar og Önnu Sigríði Kristjánsdóttur, aðstoðarmann bankastjóra.