Afgreiðslu bankans í Hólmavík lokað

Afgreiðslu bankans í Hólmavík lokað

Í gær, miðvikudaginn 5. nóvember, var afgreiðslu Arion banka í Hólmavík lokað og starfsemin færð í útibú bankans í Borgarnesi. Við bendum viðskiptavinum á afgreiðslu bankans í Búðardal og útibú bankans í Borgarnesi, en sem fyrr geta viðskiptavinir sótt þjónustu í hvaða útibú Arion banka sem er. 

Við minnum einnig á netbankann og Arion appið en þar geta viðskiptavinir nýtt sér ýmsa þjónustu bankans, auk þess sem þjónustuver bankans er opið frá kl. 9-17 alla virka daga.