Þú færð bestu bílalánin þegar þú kaupir rafmagnsbíl

Fram undan eru allsherjar orkuskipti í lofti, á hafi og á vegum úti. Við þurfum, öll sem eitt, að hjálpast að við að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda svo að sporna megi við loftslagsbreytingum og ná loftslagsmarkmiðum Íslands. Allt skiptir máli, stórt og smátt.
Arion banki vill leggja sitt af mörkum og það gerum við meðal annars með grænum bílalánum. Við vitum að kaup á rafbíl og öðrum umhverfisvænum farartækjum eru stór fjárfesting og þess vegna bjóðum við hagstæðari vexti á lánum fyrir umhverfisvæna bíla. Þú færð bestu bílalánin þegar þú kaupir rafmagnsbíl.
Bílalán á fimm mínútum – hvar og hvenær sem er
Með rafrænu umsóknarferli Arion geturðu sótt um bílalán hvar og hvenær sem er. Ferlið er algjörlega rafrænt og opið allan ársins hring. Ef þú uppfyllir öll lánaskilyrði færðu lánið strax, óháð því hvar þú ert í bankaviðskiptum. Þú getur sótt um bílalán hjá okkur hvort sem það er seint á kvöldin eða á frídegi.
Þú færð 50% afslátt af lántökugjaldi hjá okkur þegar þú kaupir rafmagnsbíl. Jafnframt bjóðum við hagstæðari vexti fyrir þá sem kaupa sér bíl sem gengur fyrir 100% endurnýjanlegri orku og tengitvinnbíla með mengunarstuðli undir 50g CO2/KM.
Hér geturðu skoðað ólík lánakjör í einfaldri reiknivél á heimasíðu okkar. Þar má gera verðsamanburð á rafmagnsbílum, öðrum umhverfisvænum bifreiðum og bensín- og dísilbílum.
Svona fjármögnum við grænu bílalánin
Öll grænu bílalánin okkar eru fjármögnuð með grænum innlánunum og grænum skuldabréfum. Hvað þýðir það? Jú, til dæmis að allt fjármagn, sem viðskiptavinir okkar leggja inn á innlánareikninginn Grænan vöxt, er notað til að fjármagna græn verkefni, m.a. lánveitingar til rafbílakaupa.
Einfaldasta lánaferlið
Að lokum er vert að geta þess að bílalánaferlið hjá okkur er eitt það einfaldasta á landinu.
Það virkar svona:
- Þú finnur rétta bílinn og hefur samband við bílasölu.
- Bílasali sendir inn rafræna umsókn um fjármögnun.
- Þú undirritar samning í farsímanum þínum.
- Samningi er þinglýst rafrænt.
- Til hamingju með nýja bílinn!
Á vefnum okkar geturðu lesið þér frekar til um umsóknarferlið og græn bílalán.