Hlutafjárútboð Íslandsbanka hafið
.jpg)
Útboð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka hófst í dag, þriðjudaginn 13. maí kl. 08:30 og gert er ráð fyrir að því ljúki kl. 17:00 fimmtudaginn 15. maí. Í útboðinu eru boðnir til kaups hlutir sem samsvara að lágmarki 20% af útistandandi hlutafé Íslandsbanka. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur heimild til að stækka útboðið og verði heimildin nýtt að fullu verða allir hlutir ríkisins í bankanum seldir, eða sem svarar til 45,2% útistandandi hlutafjár í Íslandsbanka.
Arion banki er meðal söluaðila útboðsins. Einstaklingar geta lagt fram tilboð á vefsíðunni kvika.is/ipo en geta jafnframt fengið aðstoð og lagt fram tilboð með því að senda tölvupóst á isbutbod2025@arionbanki.is.
Nánari upplýsingar um útboðið, áskriftarmöguleika og aðra tilhögun ásamt útboðsgögnum má finna hér.